Náðu í appið
Staten Island

Staten Island (2009)

Little New York

"There's no such thing as the perfect crime"

1 klst 36 mín2009

Myndin segir þrjár ólíkar sögur sem fara smátt og smátt að tengjast hver við aðra á margslunginn hátt.

Rotten Tomatoes25%
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Myndin segir þrjár ólíkar sögur sem fara smátt og smátt að tengjast hver við aðra á margslunginn hátt. Parmie (D‘Onofrio) er mafíuforingi á Staten Island í New York sem er í stöðugri baráttu um völd innan mafíunnar. Einn daginn lendir Parmie í því að vera rændur af Sully Halverson (Hawke), en Sully þessi vinnur við að þrífa úrgangstanka og er að reyna hvað hann getur til að bæta erfiða stöðu sína í samfélaginu. Hann þekkir svo hinn heyrnarlausa Jasper (Cassel), sem vinnur á daginn á litlum matsölustað. Hins vegar veit Sully ekki að Jasper er með smá aukavinnu; hann starfar nefnilega fyrir Parmie og hefur séð um ýmis skítverk fyrir hann. Nú þegar örlög þeirra eru svo orðin samtvinnuð verður útkoman aldrei góð fyrir alla þrjá aðila...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Why Not ProductionsFR
EuropaCorpFR
Open City FilmsUS

Verðlaun

🏆

Tokyo International Film Festival 2009: Tilnefnd: Grand Prix-verðlaun – James DeMonaco