Náðu í appið
Fish Tank

Fish Tank (2009)

2 klst 3 mín2009

Fish Tank segir frá hinni 15 ára Miu (Jarvis), en hún á í miklum vandræðum með eigið skap og er stöðugt að koma sér í vandræði.

Rotten Tomatoes91%
Metacritic81
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:KynlífKynlífVímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Fish Tank segir frá hinni 15 ára Miu (Jarvis), en hún á í miklum vandræðum með eigið skap og er stöðugt að koma sér í vandræði. Hún er rekin úr skóla og er hálf-útskúfuð úr svokölluðum vinahóp sínum. Einn góðan sumardag kemur móðir hennar (Kierston Wareing), sem seint verður kölluð afburðagóð fyrirmynd, heim með nýjan mann upp á arminn. Heitir hann Connor, er afar dularfullur, fjallmyndarlegur og allt öðruvísi en ólukkumennirnir sem hún hefur dregið heim til þeirra undanfarið. Mia fer smám saman að treysta Connor og líta meira upp til hans eftir því sem hann sýnir betur að hann ætli að breyta gæfu fjölskyldunnar til góðs, en forvitni Miu og hrifning hennar á Connor á þó eftir að setja strik í reikninginn.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

BBC FilmGB
UK Film CouncilGB
ContentFilmGB
Kasander Film CompanyNL