Náðu í appið
The Room

The Room (2003)

"Once you go in... You never come out. / A film with the passion of Tennessee Williams."

1 klst 39 mín2003

Myndin fjallar um Johnny, leikinn af leikstjóra, handritshöfundi og framleiðanda myndarinnar, Tommy Wiseau, og brösugt samband hans við kærustu sína, Lisu, og besta vin sinn...

Rotten Tomatoes24%
Metacritic9
Deila:
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Myndin fjallar um Johnny, leikinn af leikstjóra, handritshöfundi og framleiðanda myndarinnar, Tommy Wiseau, og brösugt samband hans við kærustu sína, Lisu, og besta vin sinn Mark (ó hæ! Mark), sem færir hann að lokum á ystu nöf andlega. Wiseau vann mikið með arfleifð James Dean og Tennesee Williams við gerð kvikmyndarinnar, en allar kvikmyndalegar vísanir og úrvinnsla hefða fara, vægast sagt, fyrir ofan garð og neðan í höndum herra Wiseau.

Aðalleikarar

Vissir þú?

The Room er þekkt fyrir að vera ein versta mynd sem gerð hefur verið.
Myndin var frumsýnd árið 2003 og var sýnd við einstaklega dræmar viðtökur í Los Angeles (flestir gestir vildu fá endurgreitt áður en hálftími var liðinn) þar sem ungir kvikmyndaáhugamenn rákust á hana og sáu húmorinn í hörmungunum.
Greg Sestero einn af aðalleikurum myndarinnar kom til landsins árið 2017 til að ræða um myndina og samstarf sitt við leikstjórann, og myndina The Disaster Artist sem er um gerð The Room.

Höfundar og leikstjórar

Tommy Wiseau
Tommy WiseauLeikstjóri

Framleiðendur

Chloe ProductionsUS
TPW FilmsUS
Wiseau-FilmsUS

Gagnrýni notenda (2)

"Ég bjóst við Óskarinn" Tommy Wiseau

★★★☆☆

"Ég bjóst við Óskarinn" Tommy Wiseau, ég get ekki verið meira sammála honum og þá sem fyndnasta og einstakasta myndin.The Room er svo alltof léleg að hún verður góð, í þeim fáu skipt...

Einstök mynd. Ein sú fyndnasta sem ég hef séð

★★★★☆

Ekki láta einkunnina rugla í ykkur, The Room er, eins og eflaust margir ættu að vita, einhver mesti saur sem hefur verið kvikmyndaður frá því að fundið var upp á kamerunni. En þrátt fyri...