Náðu í appið
Skyline

Skyline (2010)

"Don't Look Up"

1 klst 34 mín2010

Kvöld eitt birtast undarleg ljós yfir Los Angeles borg og kemur fljótt á daginn að um fjölmörg og gríðarstór geimskip er að ræða.

Rotten Tomatoes15%
Metacritic26
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

Kvöld eitt birtast undarleg ljós yfir Los Angeles borg og kemur fljótt á daginn að um fjölmörg og gríðarstór geimskip er að ræða. Hinn framandi, bláleiti bjarmi sem af þeim stafar, auk hinnar ótrúlegu stærðar og útlits síns, veldur því að fólk um alla borg hópast út á götur til að virða fyrir sér sjónarspilið. Hinir ójarðnesku herskarar eru hins vegar með sín eigin áform: að ná hverri og einni einustu manneskju á jarðkringlunni og útrýma mannkyninu að öllu leyti af yfirborði jarðar. Um leið og manneskja er komin út og lítur upp á skipin er orðið of seint að berjast gegn brottnáminu. Nokkrar manneskjur ná aftur á móti að verjast freistingunni og ætla sér með einhverju móti að flýja hörmungarnar sem dynja á mannkyninu, en það á eftir að reynast hægara sagt en gert, þar sem geimverurnar hafa ráð undir rifi hverju.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Joshua Cordes
Joshua CordesHandritshöfundur
Liam O'Donnell
Liam O'DonnellHandritshöfundurf. 1982

Aðrar myndir

Framleiðendur

RAT EntertainmentUS
Rogue PicturesUS
Hydraulx
Transmission Pictures
Relativity MediaUS
Universal PicturesUS

Gagnrýni notenda (3)

Aldrei verið eins pirraður!

★☆☆☆☆

Ég er núna loksins búin að átta mig á því að maður á ekki að fagna alltof snemma eftir að maður er búin að sjá trailer á mynd. Trailerinn á myndinni var eins og djöfullinn. Mjög t...

Lætur Independence Day líta út eins og Inception

★☆☆☆☆

Sumar myndir eru svo lélegar að eftir áhorf þarf maður að kanna hvort andlega heilsan hafi eitthvað breyst. Eftir að hafa horft á Skyline leið mér eins og ég þyrfti á svona 10 höfuðver...

slæmt

★☆☆☆☆

það eru svo sem flottar tæknibrellur en þessi mynd er afskaplega leleg veit ekki hvernig á að lísa því en það löbbuðu margir út á mismunandi tímum í myndini sumir þoldu greinilega me...