Náðu í appið
The New Daughter

The New Daughter (2009)

"How Far Will A Father Go To Protect The Ones He Loves?"

1 klst 48 mín2009

The New Daughter segir frá rithöfundinum John James, sem hefur átt betri tíma í lífinu.

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

The New Daughter segir frá rithöfundinum John James, sem hefur átt betri tíma í lífinu. Konan er nýfarin frá honum og hann neyðist til að flytja með tvö börn sín til afskekkts sveitahúss í Suður-Karólínu. Á landareigninni er að finna indjánagrafreit sem vekur áhuga dótturinnar Louisu, en hún er að komast á kynþroskaskeiðið. Stuttu eftir að þau flytja inn fer hegðun Louisu að breytast, auk þess sem húsið fer að gefa frá sér undarleg hljóð og kötturinn hverfur sporlaust. Hún eyðir sífellt meiri tíma hjá grafreitnum og á meðan verður sonurinn Sam stöðugt skelkaðri. John kemst auk þess að því að húsið á sér afar skuggalega sögu en verður að finna svör við hinum undarlegu atburðum áður en Louisa verður of hættuleg, bæði sjálfri sér og öðrum.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Luiso Berdejo
Luiso BerdejoLeikstjórif. -0001
John Travis
John TravisHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

New Daughter Productions
Gold Circle FilmsUS