Náðu í appið
Öllum leyfð

Ramona and Beezus 2010

Fannst ekki á veitum á Íslandi

A Little Sister Goes A Long Way.

103 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 70% Critics
The Movies database einkunn 56
/100

Ævintýri þriðja bekkingsins Ramonu (Joey King) og eldri systur hennar Beezus (Selena Gomez) lifna við á hvíta tjaldinu eftir að hafa slegið í gegn í metsölubókum Beverly Cleary. Öflugt ímyndunarafl Ramonu, óþreytandi kraftur og hennar ótrúlegi hæfileiki við að koma sér í klandur eða valda einhverjum slysum heldur vinum og vandamönnum hennar á tánum. En... Lesa meira

Ævintýri þriðja bekkingsins Ramonu (Joey King) og eldri systur hennar Beezus (Selena Gomez) lifna við á hvíta tjaldinu eftir að hafa slegið í gegn í metsölubókum Beverly Cleary. Öflugt ímyndunarafl Ramonu, óþreytandi kraftur og hennar ótrúlegi hæfileiki við að koma sér í klandur eða valda einhverjum slysum heldur vinum og vandamönnum hennar á tánum. En það eru einmitt þessir barnslegu og fjörugu eiginleikar sem koma henni að góðum notum þegar hún einsetur sér að bjarga heimili Quimby fjölskyldunnar. Eftir að brotinn er niður veggur til að byggja nýtt herbergi við húsið missir faðir þeirra systra (John Corbett) vinnuna. Ramona heyrir samtal foreldra sinna um yfirvofandi peningavanda þeirra og ákveður að selja límonaði og þrífa bíla til að safna fjár. Þetta, eins og svo margt annað í lífi Ramonu endar með ósköpum, en hver getur staðist sjarma þessa litla hrakfallabálks? ... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn