Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

Girl 6 1996

Frumsýnd: 19. júlí 1996

She's The Only Thing Better Than Being There

108 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 39% Critics
The Movies database einkunn 44
/100

Kona af afrísk-amerískum rótum sem langar að verða leikkona vinnur ýmis störf til að halda sér uppi ( afhenda dreifibréf, vinna í fatahengi ofl. ) áður en hún nær því takmarki sínu að fá að leika í prufu fyrir leikstjórann Q.T. , sem er fremur sjúskaður kvikmyndaleikstjóri. Q.T. segir að hann vilji bjóða henni hlutverk í næstu bíómynd sinni, en þar... Lesa meira

Kona af afrísk-amerískum rótum sem langar að verða leikkona vinnur ýmis störf til að halda sér uppi ( afhenda dreifibréf, vinna í fatahengi ofl. ) áður en hún nær því takmarki sínu að fá að leika í prufu fyrir leikstjórann Q.T. , sem er fremur sjúskaður kvikmyndaleikstjóri. Q.T. segir að hann vilji bjóða henni hlutverk í næstu bíómynd sinni, en þar sem að hlutverkið krefst þess að leikkonan sé nakin, þá þurfi hún fyrst að sýna sér brjóstin. Eftir að hún rekur umboðsmann sinn, þá er leikkonan orðin blönk, og er boðið starf við símaklám. Þar fær hún heitið Girl 6, eða Stelpa 6, og komið er fram við hana af virðingu af yfirmanninum, og samstarfsmönnunum líkar vel við hana. Hún á hinsvegar erfitt með að skilja á milli vinnu og einkalífs og hún verður gagntekin af einum af viðskiptavinum sínum, Bob, sem hringir reglulega. Hún gengur svo langt að setja upp fund með honum. Stelpa 6 vinnur við að uppfylla fantasíur annars fólks, en fer brátt að dragast inn í eigin tilbúna heim, þar sem hún getur verið kynþokkafull gyðja á hvíta tjaldinu eða hörku bíókvendi ( Blaxploitation ) . Fyrrum kærasti hennar, sem dregur fram lífið með smáþjófnaði, grátbiður hana um að gefa sér annað tækifæri, og nágranni hennar, hafnaboltaspjaldasafnari að nafni Jimmy, er sífellt að segja henni að hún eigi að gera eitthvað meira jákvætt við líf sitt. ... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn


Ég skil ekki afhverju girl 6 eftir Spike Lee var á botnlista kvikmyndir.is þetta er góð mynd og reyndar öðruvísi,sorgleg og átakanleg,vel leikin,vel skrifuð og vel leikstýrð.

Við kynnumst atvinnulausri leikkonu(Terasa Randle)sem neyðist til að vinna við símavændi og svo smá saman brotnar hún niður.

Madonna,Tarantino,Naomi Campbell og Halle Berry leika aukahlutverk.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn