Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

How I Spent My Summer Vacation 2012

(Get the Gringo)

Justwatch

Frumsýnd: 4. maí 2012

Plan the Getaway.

95 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 81% Critics
The Movies database einkunn 60
/100

Driver hefur komist yfir mikla peninga sem hann á ekki og reyndar ekki heldur glæpaforinginn sem þykist eiga þá. Í stað þess að skila peningunum til glæpaforingjans ákveður Driver að stinga af með þá til Mexíkó þar sem hann ætlar sér að njóta lífsins. Honum tekst með naumindum að komast yfir landamærin með menn glæpaforingjans á hælunum, en þá... Lesa meira

Driver hefur komist yfir mikla peninga sem hann á ekki og reyndar ekki heldur glæpaforinginn sem þykist eiga þá. Í stað þess að skila peningunum til glæpaforingjans ákveður Driver að stinga af með þá til Mexíkó þar sem hann ætlar sér að njóta lífsins. Honum tekst með naumindum að komast yfir landamærin með menn glæpaforingjans á hælunum, en þá tekur lítið betra við þegar gjörspilltir landamæraverðirnir handtaka hann, stela af honum peningunum og varpa honum í eitthvert magnaðasta fangelsi sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Í fangelsinu aðlagast Driver fljótt aðstæðum, hittir 11 ára gamlan dreng sem verður félagi hans, mömmu drengsins sem verður ástkona hans, og heilan helling af skuggalegum mönnum sem hann þarf að takast á við til að hafa sitt fram ...... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Handrit

Ekki slæm, en ekki búast við flugeldasýningu
*** Mildir Spillar (spoilers) ***

Mel Gibson er búinn að missa traust flestra í Bandaríkjunum, sem er líklega ástæða þess að hún var aðeins sýnd í Austin Texas (að því er ég best veit) fyrir virkilega áhugasama, en annars bara gefin út á DvD og til boða á VOD þjónustu. Það er ekki víst að álitið breytist mikið eftir þessa mynd, þó hún sé alveg sæmileg. Það sem gerir þessa mynd bærilega er Mel Gibson, því það er eins og það sé þægilegt að horfa á hann leika.

Í fyrsta atriðinu í skín strax í gegn að karakter Gibson‘s er þessi kaldhæðni, „oh ég nenni þessu ekki“ glæpamaður sem maður á að halda með frá upphafi. Eftir að hafa „sloppið“ frá Bandarísku lögreglunni með því að negla bílinn sinn í gegnum landamæragrindverkið og yfir á Mexíkóska grund, ákveða spilltar löggur í Mexíkó að þær vilji taka hann fastan frekar en að láta Kanana um það því hann er með bílinn fullan af seðlum. Og hefst upp frá því mikið ævintýri með okkar manni.

Myndin býður upp á nokkur ágæt atriði en það er sumt sem virkaði frekar heimskulegt. Eitt af því er sú staðreynd að krakkinn sem Driver (karakter Gibson) hittir í fangelsinu byrjar upp úr hálf-þurru að tala við hann. Móðir hans segir seinna að hann tali ekki við marga og haldi sig svolíitið útaf fyrir sig. Hann virkar frekar eins og formaður leikfélagsins í MH en andfélagslegur krakki í fangelsi. Einnig er erfitt að átta sig á því hvers vegna Driver ákveður að hjálpa drengnum, en Driver lítur út fyrir að vera nokkuð sama um annað fólk alveg frá byrjun og ekki gerir krakkinn neitt sérstakt fyrir hann sem hann þarf að endurgjalda. Var það vegna þess að Driver var leyinskytta í hernum fyrir einhverjum árum og þær vinna alltaf í tveggja manna hópum? Það hentar sögunni svo það verður víst að vera ástæðan.
En byrjun myndarinnar er lang besti hluti hennar, manni er ekki alveg sama um karakter Gibson og bíður jafnvel tiltölulega spenntur eftir því sem á eftir kemur. En þegar hasarinn eykst seinna í myndinni er ekki erfitt að missa athyglina. Það má segja að myndin missi gjörsamlega flugið þegar það líður á hana; um leið og atriðunum, sem fá áhorfendur til að klóra sér í höfðinu yfir, fjölgar.

Stundum átti ég erfitt með hlátur þegar það var án efa ekki markmið myndarinnar. Sérstaklega í einu atriðinu, þegar krakkinn var nýbúinn að segja Gibson hvers vegna hann vildi drepa bófann sem virðist ráða öllu innan veggja fangelsisins. En á það atriði er klippt og sýnd er nærmynd af krakkanum með sígarettu í munninum með þennan bráðfyndna svip; rétt áður en hann fer að segja frá því hvernig faðir hans var myrtur. Þannig að mér leið hálf illa yfir því að hafa hlegið.
En annars voru mörg fín atriði og myndin í heild er ekki móðgandi heimsk eða hlægilega léleg, langt því frá. Það er vel hægt að hafa gaman af þessari. Leikur Gibson er tiltölulega náttúrulegur og karakterinn hans virkar mannlegur, svo áhorfengur ætti að geta tengst honum. Annars hefur myndin margt af þessu venjulega og er ekkert sérstaklega ófyrirsjáanleg. Þú hefur þarna spilltar löggur, nokkra harðjaxla sem vinna fyrir stjórann, sem er fjarlægur hasarnum, og eru sendar til að taka í aðalpersónuna; einnig geðveika aulann sem er í góðri stöðu í fangelsinu vegna þess að hann hefur ættartengsl, en enginn í fjölskyldunni þolir hann, og hann þarf að sýna ómennska illsku svo allir átti sig á því að hann á ekkert gott skilið. Og svona mætti áfram telja.

Það er vel hægt að horfa á þessa. Ég mæli með henni ef þú vilt smá hasar með bærilegu plotti og ágætum karakterum en ekki búast við flugeldasýningu - 6/10
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Tengdar fréttir

08.10.2012

Statham og rússneska mafían á toppi DVD listans

Vinsælasta myndin á Íslandi á DVD í vikunni 1. - 7. október var spennumyndin Safe með Jason Statham í aðalhlutverkí, en hún var líka í efsta sæti í síðustu viku. Í myndinni á Statham, í hlutverki fyrrverandi lögreglu...

08.05.2012

Mel bjargar meðalmennskunni

Aumingja Mel Gibson! Það hljóta að vera ótrúlega, ótrúlega margar stórstjörnur - bæði fyrrverandi og núverandi - sem eru fordómafullir skíthælar sem segja og gera heimskulega hluti þegar áfengið stjórnar heilanum...

07.05.2012

Áhorf vikunnar (30. apríl - 6. maí)

Leggjum nú veðféð á borðið, mun The Avengers verða tekjuhæsta kvikmynd allra tíma? Heilar 200 bandaríkjamillur á einni helgi vestanhafs og á tveim vikum hefur hún halað inn rúmar 600 milljónir bandaríkjadollara á heimsvísu. En komum okkur að áhorfinu, sáu einhverjir...

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn