Náðu í appið
Norð Vestur

Norð Vestur (2010)

1 klst 40 mín2010

Norð Vestur rekur atburðarrás björgunaraðgerða á Flateyri eftir að mikið snjóflóð fell á bæinn aðfaranótt 26.

IMDb5.7
Deila:

Hvar má horfa

Streymi
Netflix
Leiga
Síminn

Söguþráður

Norð Vestur rekur atburðarrás björgunaraðgerða á Flateyri eftir að mikið snjóflóð fell á bæinn aðfaranótt 26. október 1995. Áður en aðstoð barst Flateyringum voru þeir einir í nærri fimm klukkustundir að leita, finna og grafa upp nágranna sína, vini og ættingja, og skipuleggja aðgerðir. Margar hindranir voru í vegi björgunarsveita úr nágrannabyggðum og af landinu öllu, bæði veðurofsi og snjóflóðahætta. Snjóflóðið reyndist eitt mannskæðasta snjóflóð á Íslandi og markaði árið 1995 tímamót í hamfarasögu landsins, en alls fórust 35 manns í flóðum það ár. Þessi einstæði atburður er mörgum í fersku minni, en frá honum segja yfir 40 einstaklingar, heimafólk frá Flateyri, aðstandendur, björgunar- og fjölmiðlafólk og fjöldi þjóðþekktra Íslendinga. Einnig einstaklingar sem lentu í flóðinu og voru grafnir undir snjó í allt að 9 klukkustundir.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar