W.E. (2011)
Wallis og Edward
"Their Affair ignited a scandal, their passion brought down an empire "
Sagan af einhverju frægasta ástarsambandi 20.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
Hræðsla
BlótsyrðiSöguþráður
Sagan af einhverju frægasta ástarsambandi 20. aldarinnar þegar erfingi bresku krúnunnar, Játvarður prins, afsalaði sér konungstign til að geta verið með og kvænst Wallis Simpson. Myndin gerist að hluta til í nútímanum og við kynnumst Wally Winthrop sem verður hugfangin af ástarsögunni þegar hún mætir á uppboð sem haldið er á eigum Wallis Simpson árið 1998. Í framhaldinu einsetur Wally sér að skoða betur þátt Wallis í því máli sem skók bresku þjóðina þegar Játvarður prins tilkynnti í útvarpsávarpi að hann hefði ákveðið að taka ást sína til hinnar tvífráskildu Wallis fram yfir skyldur sínar sem erfingi bresku krúnunnar og afsalaði sér konungdóminum. Þetta þótti gríðarlegt hneyksli á sínum tíma og skók breska konungsdæmið rétt fyrir upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Meðfram rannsóknum Wallyar á málinu hverfum við aftur í tímann til að kynnast hinum raunverulegu atburðum sögunnar en fólk hafði á þeim tíma litla innsýn, ef einhverja, í hvernig Wallis sjálf leit á málið.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Aðrar myndir
Myndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestu búningahönnun. Lag Madonnu, Masterpiece, hlaut hins vegar Golden Globe-verðlaunin sem besta kvikmyndalag ársins.















