Náðu í appið
House at the End of the Street

House at the End of the Street (2012)

"Fear reaches out... for the girl next door."

1 klst 41 mín2012

Hin nýlega fráskilda Sarah og dóttir hennar Elissa, finna draumahúsið í litlum afskekktum bæ.

Rotten Tomatoes10%
Metacritic31
Deila:
14 áraBönnuð innan 14 ára

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Hin nýlega fráskilda Sarah og dóttir hennar Elissa, finna draumahúsið í litlum afskekktum bæ. En þegar óþægilegir og óskiljanlegir hlutir fara að gerast, þá uppgötva Sarah og Elissa að yfir bænum hvílir skuggi hræðilegs leyndarmáls. Mæðgurnar eru ekki búnar að vera lengi á hinum nýju heimaslóðum sínum þegar þær heyra söguna af því þegar stúlkan í næsta húsi myrti foreldra sína með köldu blóði án nokkurrar sýnilegrar ástæðu og hvarf síðan út í buskann að því er virðist. Sá eini sem eftir lifir af fjölskyldunni er bróðir stúlkunnar, Ryan, en hann býr enn í húsinu og er því nágranni mæðgnanna. Óhætt er að segja að bæði morðmálið og Ryan veki athygli Elissu sem leiðir til þess að hún og Ryan byrja að hittast þvert á vilja Söruh sem hefur á tilfinningunni að það búi eitthvað annað og meira á bak við sakleysislegt útlit Ryans en hann vill vera láta. Og brátt fara undarlegir hlutir að gerast sem í fyrstu valda því þó að Elissa verður bara enn forvitnari um málið. Hvað varð um systur Ryans eftir að hún framdi morðin? Getur verið að hún sé enn á lífi? Eða getur kannski verið að hún búi enn í húsinu?

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Mark Tonderai
Mark TonderaiLeikstjóri

Aðrar myndir

Framleiðendur

A Bigger Boat
FilmNation EntertainmentUS
Relativity MediaUS