Náðu í appið
Snabba Cash II

Snabba Cash II (2012)

Easy Money 2

1 klst 39 mín2012

Johann „JW“ Westlund er í fangelsi og hefur verið þar síðastliðin þrjú ár, eða allt frá því að ásókn hans í völd og peninga í...

Rotten Tomatoes50%
Metacritic57
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára

Hvar má horfa

Söguþráður

Johann „JW“ Westlund er í fangelsi og hefur verið þar síðastliðin þrjú ár, eða allt frá því að ásókn hans í völd og peninga í undirheimum eiturlyfjaviðskipta fóru í vaskinn með hörmulegum afleiðingum. En Johann hefur hagað sér vel í fangelsinu og það er kominn tími til að láta hann lausan á skilorði, enda fylgir því sú kvöð að hann blandi sér ekki í neitt misjafnt og haldi sig réttum megin við laganna strik. Allslaus og nánast vinalaus heldur Johann því á ný út á meðal frjálsra manna með tækifæri upp á vasann til að reisa við orðspor sitt og líf. Hann kemst hins vegar fljótt að því að hinn þröngi vegur dyggðarinnar er ekkert síður erfiður yfirferðar en sá breiði ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Nordisk Film DenmarkDK
Nordsvensk FilmunderhållningSE
Hobohm BrothersSE
ZDF/ArteDE
SVTSE
Film i VästSE