Captain America: The Winter Soldier (2014)
"In heroes we trust."
Eftir miklar hamfarir í New York í myndinni The Avengers þá býr Captain America, eða Steve Rogers eins og hann heitir réttu nafni, í Washington...
Bönnuð innan 12 ára
OfbeldiSöguþráður
Eftir miklar hamfarir í New York í myndinni The Avengers þá býr Captain America, eða Steve Rogers eins og hann heitir réttu nafni, í Washington og lifir þar rólegu lífi, og reynir að laga sig að nútímanum. En þegar ráðist er að félaga hans í S.H.I.E.L.D. samtökunum, þá flækist Steve í stórhættulegan vef atburða, sem ógna öryggi heimsins. Hann tekur höndum saman með Svörtu ekkjunni, og reynir að finna út úr miklu samsæri sem er í gangi og berst við hóp leigumorðingja sem sendir voru til að þagga niður í honum fyrir fullt og allt. Þegar samsærið nær hámarki þá fá Captain America og Svarta ekkjan hjálp frá nýjum bandamanni, Fálkanum, eða The Falcon. Fljótlega fá þau þó að kynnast óvæntum og stórhættulegum óvini - The Winter soldier. Hér er ekki við neinn venjulegan andstæðing að etja. The Winter Soldier rekur uppruna sinn til síðari heimsstyrjaldarinnar og var í raun bandarísk ofurhetja, Bucky Barnes, áður en Sovétmenn náðu honum á sitt vald á sínum tíma og sneru honum gegn sinni eigin þjóð. En hver er tilgangur hans?
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar




Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur


























