The Wages of Fear
1953
(Le salaire de la peur)
Frumsýnd: 20. janúar 2013
131 MÍNFranska
100% Critics 85
/100 Myndin hlaut gullpálmann í Cannes og gullbjörnin í Berlín árið 1953.
Í suður-amerísku þorpi er hópi manna heitið ríflegri áhættuþóknun fyrir að flytja í skyndi farm af nitrógliseríni gegnum torfæran skóg. Vörubílarnir eru illar búnir til flutninga á svo sprengifimum farmi. Og milli vörubílstjóranna myndast rígur um það hverjir þeirra koma farminum á áfangastað. Gríðarleg spenna myndast þegar ekið er yfir lélegar... Lesa meira
Í suður-amerísku þorpi er hópi manna heitið ríflegri áhættuþóknun fyrir að flytja í skyndi farm af nitrógliseríni gegnum torfæran skóg. Vörubílarnir eru illar búnir til flutninga á svo sprengifimum farmi. Og milli vörubílstjóranna myndast rígur um það hverjir þeirra koma farminum á áfangastað. Gríðarleg spenna myndast þegar ekið er yfir lélegar hengibrýr og drullusvöð en ekkert fær stöðvað mennina sem eiga allt undir því að hljóta laun fyrir að takast á við ómennskan óttann, komist þeir alla leið. Og velt er upp spurningum um siðferði manna hjá olíufyrirtækinu sem rekur þannig fátæka menn á vit dauðans, gerir þá að andstæðingum í stað samherja á ögurstundu …... minna