Náðu í appið
Antiviral

Antiviral (2012)

"What If You Could Feel Like They Do ..."

1 klst 48 mín2012

Myndin gerist í náinni framtíð þegar dýrkun almennings á hinum frægu er komin út í þvílíkar öfgar að fólk kaupir sér til að mynda sjúkdóma...

Rotten Tomatoes65%
Metacritic55
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára

Söguþráður

Myndin gerist í náinni framtíð þegar dýrkun almennings á hinum frægu er komin út í þvílíkar öfgar að fólk kaupir sér til að mynda sjúkdóma sem hrjá stjörnurnar og borðar kjöt sem er ræktað úr frumum þeirra. Markaðurinn er bæði stór og ábatasamur og því hafa margir áhuga á að nýta sér hann, ekki alltaf á löglegan hátt. Caleb Landry Jones leikur ungan mann, Syd, sem vinnur fyrir fyrirtæki í þessum bransa. Hlutverk hans er að selja áhugasömum sjúkdómana úr stjörnunum og um leið að verða fyrirtækinu út um söluvöruna. En Syd starfar einnig á svarta markaðinum þar sem hann notar aðstöðu sína til að selja kjötframleiðendum lífsvökva stjarnanna sem hann dregur sjúkdómana úr. Sjálfur er Syd einnig notandi vörunnar, smitar t.d. sjálfan sig með öllum þeim sjúkdómum sem hann höndlar með og það á auðvitað eftir að hafa afleiðingar ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Brandon Cronenberg
Brandon CronenbergLeikstjórif. -0001

Framleiðendur

Alliance FilmsCA
TF1 InternationalFR
Téléfilm CanadaCA