Náðu í appið
Seventh Son

Seventh Son (2015)

"In the Face of Evil, Claim your Destiny."

1 klst 42 mín2015

Hinn ungi Thomas gerist lærlingur hjá galdramanninum Gregory sem kann sitthvað fyrir sér í baráttunni við hin illu öfl, enda hefur hann kennt mörgum á undan Thomasi.

Rotten Tomatoes12%
Metacritic30
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Söguþráður

Hinn ungi Thomas gerist lærlingur hjá galdramanninum Gregory sem kann sitthvað fyrir sér í baráttunni við hin illu öfl, enda hefur hann kennt mörgum á undan Thomasi. Það hefur þó ekki dugað til! Seventh Son fjallar um hinn unga Thomas sem kemst að því að honum er ætlað stærra hlutverk í lífinu en öðrum mönnum í hans stöðu. Hann er nefnilega hinn svokallaði sjöundi sonur sjöunda sonar sem ætlað er að berjast gegn illum öflum heimsins, en þau samanstanda af alls kyns ótugtum, forynjum, skrímslum, nornum, púkum og djöflum sem vilja ráða með grimmd yfir landinu og mannfólkinu. Til að rækta hæfileika sína og læra að kljást við hið illa gerist Thomas lærlingur galdramannsins Gregorys, en hann hefur í gegnum árin þjálfað marga unga menn til að berjast sér við hlið. Vandamálið er hins vegar að enginn fyrri nemenda hans hefur komist lifandi í gegnum lexíurnar. Þegar hin vonda norn Malkin, sem ætlar sjálfri sér og fylgjendum sínum völdin, sleppur laus úr prísund sinni má segja að Thomas fái eldskírnina ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Sergey Bodrov
Sergey BodrovLeikstjóri
Matt Greenberg
Matt GreenbergHandritshöfundur
Charles Leavitt
Charles LeavittHandritshöfundur

Framleiðendur

Legendary PicturesUS
Thunder RoadUS
Moving Picture CompanyGB
Pendle Mountain Productions
China Film Group CorporationCN
Wigram ProductionsUS