Viig og Hader leika tvíburasystkini sem eru hætt að talast við, en bæði sleppa naumlega undan því að deyja á sama deginum, og það verður til þess að þau ákveða að hittast á ný og fara yfir það hvað fór úrskeiðis í sambandi þeirra. Rannsókn þeirra beggja hefst með því að horfa til baka á sambönd við gamlar kærustur og kærasta.