Veiðimennirnir
2014
(Fasandræberne)
Frumsýnd: 20. febrúar 2015
Hver framdi morðin?
119 MÍNDanska
92% Critics 61
/100 Þegar ungir tvíburar eru myrtir beinist grunur að hópi nemenda úr efri stétt, þó ekki sé allt sem sýnist. Þegar fyrrverandi lögreglumaður og nú óreglumaður kemur að máli við Carl Mørck og segir honum frá óleystu morðmáli ákveða Carl og Assad aðstoðarmaður hans að hella sér í rannsókn þess af krafti. Nikolaj Lie Kaas og Fares Fares með hlutverk... Lesa meira
Þegar ungir tvíburar eru myrtir beinist grunur að hópi nemenda úr efri stétt, þó ekki sé allt sem sýnist. Þegar fyrrverandi lögreglumaður og nú óreglumaður kemur að máli við Carl Mørck og segir honum frá óleystu morðmáli ákveða Carl og Assad aðstoðarmaður hans að hella sér í rannsókn þess af krafti. Nikolaj Lie Kaas og Fares Fares með hlutverk þeirra Carls Mørck og Assads, en þeir vinna í svokallaðri Q-deild lögreglunnar við að flokka gömul óleyst sakamál. Morðmálið óleysta sem þeir Carl og Assad reyna að komast til botns í átti sér stað fyrir 20 árum í grennd við heimavistarskóla sem aðeins þeir efnameiri gátu sent börn sín í. Tvær ungar konur voru myrtar á hrottalegan hátt og þótt sterkar vísbendingar hafi verið um að morðinginn eða morðingjarnir tengdust skólanum var rannsókn málsins lögð á hilluna og grundvelli ónógra sannana. Það tekur þá Carl og Assad hins vegar ekki langan tíma að komast að því að hér er heldur betur maðkur í mysunni sem aftur tryggir að þeir munu ekki láta staðar numið fyrr en þeir eru búnir að komast að hinu sanna ...... minna