X-Men: Getraun 1/3

Það styttist óðfluga í mynd sem flestir virðast ætla að kalla óvæntustu myndina á árinu hingað til (já, mun óvæntari en Thor greinilega), X-Men: First Class. Hún er heimsfrumsýnd eftir 2 daga (og forsýnd af Nexus í kvöld kl. 20 í Smárabíói) og eru flestir dómar hingað til æpandi af hrifningu.

Nei, í alvöru talað. Rennið aðeins yfir þetta:

„Audacious, confident and fueled by youthful energy, this is a surefire summer winner for a wide global audience.“
– Todd McCarthy, Hollywood Reporter

„The best praise I can give X-Men: First Class is that it’s a wonderful movie, not just a wonderful X-Men movie or a wonderful Marvel movie or a wonderful superhero movie. It’s a damn good film, full stop, all other genres and ghetto-izations aside.“
– BadAssDigest

„We know that story so well, and yet somehow Vaughn has made it feel fresh and new again.“
– IGN Movies

„It’s intelligent and emotionally resonant, explosive and eye-dazzling. Factor in a zeitgeisty, hot-list cast and First Class is likely to be one of the summer’s best biggies.“
– Total Film

5/5
„An action blockbuster with rollercoaster thrills and laughs that has a fundamentally intelligent core.“

8/10
„Fans of the movies should appreciate how Matthew Vaughn has established characters they love in a unique setting with a strong cast and set pieces as big and impressive as the other movies.“
– ComingSoon.net

…o.s.frv.

Allaveganna… á morgun og hinn mun ég gefa opna boðsmiða á myndina. Sem upphitun mun ég hins vegar gefa svolítið annað núna, og það er DVD sett með hinum fjórum myndum seríunnar (X-Men, X2, The Last Stand og Wolverine). En eina leiðin til að nálgast það er að taka þátt í X-Men-tengda leiknum mínum. Ofsalega einfaldur og skemmtilegur. Alveg þess virði að fórna tveimur mínútum í og þeir sem eru (kvikmynda- og/eða X-Men) aðdáendur þurfa ekki einu sinni að googla svörin.

Munið bara að senda mér svörin á tommi@kvikmyndir.is. Þið hafið meira en sólarhring til þess að taka þátt og þá taka hinir leikirnir við.

Hér koma spurningarnar:

1. Hvað heitir þessi karakter og hver leikur hann í þríleiknum? (Wolverine-myndin augljóslega ekki tekið með)

2. Hver af þessum leikstjórum hefur aldrei leikstýrt mynd fyrir X-Men-seríuna?

a) Gavin Hood

b) Brett Ratner

c) Jon Favreau

3. Persónan Bobby Drake heitir með öðru nafni….?

4. Nightcrawler hefur hingað til bara sést í einni X-Men-mynd. Númer hvað er hún?

5. Hvaða ár kom fyrsta X-Men-myndin út? (þessi mynd aðstoðar aðeins ef þið eruð með gott auga)

Þá er ekki eftir neinu að bíða en að dúndra inn svörunum ykkar. Ég sendi þeim aðila póst tilbaka sem vinnur settið.
Gangi ykkur vel!

T.V.