Wood njósnar um leikkonu

Ný stikla er komin út fyrir spennutryllinn Open Windows eftir Nacho Vigalondo. Myndin fer með áhorfandann bakvið tölvuskjá og þannig verður áhorfandinn aðal söguhetjan í myndinni, ef svo má að orði komast.

sasha grey

Um er að ræða fyrstu mynd Vigalondo á ensku. Aðalhlutverk leika Elijah Wood ( Lord of the Rings ) og fyrrum klámstjarnan Sasha Grey. Wood leikur mann sem er heltekinn af leikkonu sem Grey leikur. Hann fær aðgang að einkalífi hennar í gegnum tölvuskjá.

Sjáðu stikluna hér fyrir neðan:

Aðrir leikarar eru Neil Maskell, Iván González, Brian Elder, Trevante Rhodes, Jaime Olías og Ulysses Lopez.

Söguþráðurinn er eftirfarandi: Jill, vinsæl leikkona, afþakkar kvöldverðarboð frá Nick, aðdáanda sem vann stefnumót með henni á netinu, í leik sem dreifingaraðili myndarinnar stóð fyrir. Í staðinn fær Nick, með hjálp manns að nafni Chord, sem vinnur fyrir Jill, að fylgjast með leikkonunni í gegnum tölvuna sína. Nick áttar sig fljótlega á að hann er orðinn að leikbrúðu í tryllingslegri áætlun sem Chord hefur sett saman, til að elta leikkonuna uppi.

OPEN-WINDOWS-Poster-535x760