Cheech & Chong snúa aftur

Spéfuglinn Tommy Chong var í viðtali við vefsíðuna Celebstoner.com á dögunum og uppljóstraði þar að ný Cheech & Chong mynd væri á leiðinni.

„Það er verið að vinna í handritinu, við höfum séð afraksturinn og þetta lítur mjög vel út, virkilega fyndið.“ sagði Chong.

cheechchong

Þrátt fyrir að myndin sé á byrjunarstigi þá segir Chong að framleiðsla geti hafist í sumar. Í fyrra kom út teiknimynd um þá félaga, en hún var sett saman með gömlum hljóðbútum úr uppistandi þeirra um árið.

Cheech & Chong eru nú orðnir vel þekktir fyrir vitleysu og asnaskap í myndum sínum og hafa unnið sér til frægðar í þeim geira með myndum eins og Up In Smoke, Nice Dreams, og Still Smokin’. Flestir muna eftir Cheech Marin sem hefur komið mun meira fram heldur en Tommy Chong. Cheech hefur m.a. leikið í From Dusk Till Dawn og The Great White Hype.

Fyrsta myndin, Up in Smoke, kom út árið 1978, og fjallaði hún um félagana er þeir smygluðu óvart sendiferðabíl sem var gerður úr marijúana frá Mexíkó til Los Angeles.