Vin Diesel skrifar Pitch Black 2

Hinn tröllvaxni en þó viðkunnalegi Vin Diesel mun skrifa handritið að framhaldinu af Pitch Black ásamt leikstjóranum David Twohy ( The Arrival ). Er vinnuheitið á henni The Riddick Cronicles, og mun hún fjalla um persónu Diesels úr fyrri myndinni. Ljóst er að ekki munu sömu geimverurnar snúa aftur, en haldið verður í sama heiminn og hin gerðist í.