Rétt eins og í Bandaríkjunum þá heldur Marvel ofurhetjusmellurinn Deadpool sæti sínu á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans, aðra vikuna í röð. Alvin og íkornarnir eru sömuleiðis geysivinsælir, en myndin er nú í öðru sæti eftir þrjár vikur á lista. Í þriðja sæti er svo ný mynd, gamanmyndin Zoolander 2.
Ein önnur ný mynd er á listanum, mynd Coen bræðra Hail, Caesar! sem fer beint í fimmta sæti listans.
Sjáðu íslenska bíóaðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: