American Sniper, mynd Clint Eastwood sem byggð er á sannri sögu um afkastamestu leyniskyttu í sögu Bandaríkjanna, er enn vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum, þriðju helgina í röð, miðað við aðsókn gærdagsins, föstudagsins 30. janúar. Talið er að tekjur af sýningu myndarinnar yfir helgina alla muni nema 31,3 milljónum Bandaríkjadala.
Úrslitaleikurinn í bandaríska fótboltanum, SuperBowl, er nú um helgina, og hefur áhrif á bíóaðsókn.
Talið er að fjölskyldumyndin Paddington fái samt ágæta aðsókn um helgina, en hún er sú önnur aðsóknarmesta í Bandaríkjunum eftir sýningar gærdagsins.
Táninga-vísindaskáldsagan Project Almanac er sú þriðja vinsælasta, en hún hefur hlotið minni aðsókn en spáð var fyrir um, en meðal annars var ráðist í mikla Snapchat auglýsingaherferð fyrir myndina, og auglýst á fleiri samfélagsmiðlum til að ná til unglinganna.
Kevin Costner myndin Black or White er svo sú fjórða vinsælasta.
Hér fyrir neðan er listinn í heild sinni eftir sýningar gærdagsins:
1). American Sniper
2). Paddington
3). Project Almanac
4). Black or White
5). The Boy Next Door
6). The Wedding Ringer
7). The Imitation Game
8). Taken 3
9). Strange Magic
10). The Loft