Stallone leikstýrir Expendables 2

Fyrir nokkru síðan kom í ljós að naglinn Sylvester Stallone myndi ekki leikstýra framhaldinu af The Expendables, sem sló rækilega í gegn á síðasta ári. En nú hafa þeir hjá Lionsgate lýst því yfir að Stallone hafi snúist hugur og muni hann setjast aftur í leikstjórastólinn.

Lítið sem ekkert er vitað um söguna í The Expendables 2, en í viðtölum hefur Stallone sagt að hann vilji einbeita myndinni að nýrri persónum. Búist er við að þeir Bruce Willis og Jean-Claude Van Damme muni báðir fá bitastæð hlutverk í framhaldinu, sem áætlað er að komi í kvikmyndahús í ágúst á næsta ári.