Staðfest: Shane Black með Iron Man 3

Fyrir rúmri viku sögðum við frá því að leit væri hafin að leikstjóra sem tæki við Iron Man 3 af Jon Favreau, sem leikstýrt hefur fyrri myndunum tveimur. Shane Black, maðurinn á bak við Lethal Weapon seríuna, var sagður líklegur til starfsins en samkvæmt vefsíðunni Deadline er hann nú á lokastigum samningaferilsins.

Ekki er vitað hvort Black muni einnig skrifa handritið, en nógur tími er til stefnu enda er útgáfudagur Iron Man 3 settur á 3. maí, 2013. Black hefur starfað með leikaranum Robert Downey Jr. áður, en þeir gerðu myndina Kiss Kiss Bang Bang stuttu áður en Downey Jr. sló í gegn í hlutverki Tony Stark.

– Bjarki Dagur