Tyson: Ég er ekki í Hangover 3

Hnefaleikakappinn Mike Tyson átti stuttan en ógleymanlegan leik í Hangover myndunum tveimur sem búið er að gera. Blaðamaður TMZ fréttaveitunnar beið eftir Mike Tyson á flugvellinum í Los Angeles fyrr í vikunni og spurði hann nokkurra spurninga, þar á meðal um hvað væri að frétta af Hangover 3 sem frumsýnd verður næsta vor.

Tyson svaraði að bragði að hann yrði ekki í þeirri mynd.

Skoðið myndbandið hér að neðan:

Hér fyrir neðan er svo atriðið úr myndinni Hangover 1 þar sem Mike Tyson syngur gamla Phil Collins slagarann In The Air Tonight: