Viltu vinna milljarð-parið hætt saman

patel pintoDev Patel og Freida Pinto, leikararnir sem slógu í gegn í myndinni Slumdog Millionaire, eða Viltu vinna milljarð eins og myndin hét á íslensku, eru skilin að skiptum eftir sex ára samband, að því er kemur fram í breska blaðinu Telegraph.

Parið, sem hittist á tökustað Óskarsverðlaunamyndarinnar, eru hætt saman, og heimildarmaður tímaritsins US Weekly segir að „þetta hafi gerst fyrir allnokkru síðan.“

Patel og Pinto höfðu áður lýst hvort öðru sem sálufélögum, en sex ára aldursmunur er á leikurunum, Pinto er 30 ára, en Patel er 24 ára.