Viltu vinna miða á Underworld 4?

Það má segja ýmislegt um Underworld-myndirnar en þær eru svo sannarlega stílískari og harðari heldur en Twilight-myndirnar, og fyrst við erum að ræða um brútal ofbeldi, þá lítur út fyrir að Underworld: Awakening sé blóðugri og subbulegri mynd heldur en Expendables 2 mun nokkurn tímann verða. Hversu sjúkt er það?

Awakening er allavega fjórða myndin í seríunni, eða í rauninni sú þriðja ef Rise of the Lycans er séð sem „núllta“ myndin. Að minnsta kosti erum við að ræða um þriðju myndina með Kate Beckinsale í þröngum og að sjálfsögðu lífsnauðsynlegum, leðurkenndum hasargalla sem nær alltaf að betrumbæta hvern einasta bíóramma. En ef þessi mynd er allavega frumsýnd um helgina (ein af tveimur myndum með Beckinsale, athugið það!) og ef þetta er mynd sem þú hefur áhuga að sjá, þá máttu senda mér tölvupóst á tommi@kvikmyndir.is. Þar áttu að segja mér hver þér finnst vera heitasta vampíra í heimi og hvers vegna. Listinn er alveg örugglega lengri heldur en margir gera sér grein fyrir.

Þið hafið út alla helgina til að senda inn og á næstu þrjá daga mun ég reglulega draga út vinningshafa sem ég vel af handahófi. Eða þeim sem ég er pínu sammála.

Gangi ykkur vel, góða skemmtun og eigið blóðuga helgi!

 PS. Aðeins 16 ára og eldri mega taka þátt. Kennitala verður að fylgja með!