A Good Day to Die Hard áfram vinsælust á Íslandi

Nýjasta Die Hard myndin, sú fimmta í röðinni, A Good Day to Die Hard, er ekkert á því að gefa toppsætið á íslenska bíóaðsóknarlistanum eftir, og er nú á toppi listans aðra vikuna í röð, en hún fór beint á toppinn í síðustu viku.

Í öðru sæti, ný á lista, er gamanmyndin This is 40, nýjasta mynd Judd Apatow, með Paul Rudd og Leslie Mann í aðalhlutverkum.

Í þriðja sæti er svo önnur ný mynd, Flight, með Denzel Washington í hlutverki flugmanns sem fremur ótrúlegt afrek, en áfengi og eiturlyf finnast í blóði hans eftir á.

Jagten, mynd um mann sem ranglega er sakaður um barnaníð, er svo ný á lista í fjórða sæti og í fimmta sæti, niður um þrjú sæti, er uppvakningurinn sem verður ástfanginn í Warm Bodies. 

Smelltu hér til að lesa gagnrýni kvikmyndir.is um Flight. 

Smelltu hér til að lesa gagnrýni kvikmyndir.is um A Good Day to Die Hard.

Sjáðu lista 27 vinsælustu mynda á Íslandi í dag hér að neðan: