Depp í sjóræningjaskrúða í grunnskóla: Myndband

Í gær sögðum við frá því að Johnny Depp hefði birst í fullum sjóræningjaskrúða í breskum grunnskóla eftir að Beatrice Delap, 9 ára skrifaði honum bréf og bað um aðstoð við að gera uppreisn gegn kennurum í skólanum.

Í fréttinni var ekkert myndefni, en hér að neðan má sjá myndband af Depp í hlutverki Sparrow með bréfið góða.