Vinsælasti og launahæsti leikari vorra tíma, Dwayne Johnson, er nú mættur á tökustað næstu myndar sinnar, Rampage, en myndin verður tekin upp í Atlanta í Bandaríkjunum.
Frumsýning er áætluð 20. apríl árið 2018.
Þetta er þriðja myndin sem Johnson, eða The Rock eins og hann er stundum kallaður, gerir með leikstjóranum og framleiðandanum Brad Peyton og meðframleiðandanum Beau Flynn. Síðasta mynd þeirra var jarðskjálftatryllirinn San Andreas.
Nýlega birtist myndin hér að ofan, sem var fyrsta myndin af tökustað, og sýnir Johnson og leikarann sem leikur apann George. Nú er hinsvegar búið að birta opinberan söguþráð, en þar koma áhugaverðar upplýsingar fram um persónu Johnson í myndinni, Davis Okoye.
Lestu söguþráðinn hér fyrir neðan:
„Prímatafræðingurinn Davis Okoye, sem er maður sem heldur fólki alltaf í ákveðinni fjarlægð frá sér, binst silfurbaks-górillunni George traustum böndum, en Okoye hefur fóstrað George frá fæðingu.
En þegar róttæk tilraun fer úrskeiðis þá breytist apinn í brjálað skrímsli. Til að bæta gráu ofaná svart, þá uppgötvast að til eru fleiri apar sem svipað er ástatt um. Á sama tíma og þessir sturluðu apar æða um Bandaríkin, og eyða öllu sem á vegi þeirra verður, þá slæst Okoye í lið með erfðafræðingi sem má muna sinn fífil fegurri, til að reyna að finna móteitur. Nú þarf hann að berjast gegn faraldrinum, koma í veg fyrir alheims ringulreið, og bjarga skrímslinu, sem var eitt sinn vinur hans.“
Aðrir helstu leikarar eru Óskarstilnefnda leikkonan Naomie Harris (Moonlight), Malin Akerman ( sjónvarpsþættirnir Billions), Jake Lacy ( sjónvarpsþættirnir Girls), Joe Manganiello ( sjónvarpsþættirnir True Blood) og Jeffrey Dean Morgan ( sjónvarpsþættirnir The Walking Dead); ásamt P.J. Byrne (The Wolf of Wall Street), Marley Shelton (Solace), Breanne Hill (San Andreas), Jack Quaid (The Hunger Games: Catching Fire), og Matt Gerald ( sjónvarpsþættirnir Daredevil).
Handrit skrifa þeir Ryan Engle og Adam Sztykiel, eftir sögu Ryan Engle, sem byggð er á tölvuleiknum Rampage.