Flash vann toppslaginn

Nýju myndirnar tvær, Elemental og The Flash háðu harða baráttu um hylli áhorfenda nú um þjóðhátíðarhelgina í bíó hér á Íslandi. Bardaginn endaði með sigri The Flash þegar horft er til tekna myndanna.

Tekjur Flash námu 3,5 milljónum króna en Elemental krækti í 3,2 milljónir. Fleiri komu hinsvegar að sjá Elemental eða næstum 2.100 manns á meðan rúmlega 1.800 sáu The Flash.

Toppmynd síðustu viku, Spider-Man: Across the Spider-Verse fellur niður í þriðja sætið.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: