Ford & Craig negla niður geimverur

Eins og við sögðum frá fyrir stuttu lenti plakatið fyrir hasarmyndina Cowboys & Aliens á netinu, en nú nokkrum dögum seinna hefur fyrstu stiklunni verið hleypt út í heiminn. Í stuttu máli fjallar myndin um minnislausan mann, leikinn af Daniel Craig, sem vaknar fyrir utan lítinn bæ í villta Vestrinu þar sem hann er vægast sagt óvinsæll. En þegar geimverur ráðast á bæinn virðist þessi dularfulli maður vera eina von bæjarbúa, sem og heimsins, að stöðva ógnina.

Með önnur hlutverk fara Olivia Wilde og Harrison Ford, en hér fyrir neðan má sjá stikluna umræddu. Í henni er enginn skortur á töffaraskapnum frá þeim Ford og Craig, en myndin verður væntanlega stútfull af karlmennsku eins og má sjá.

– Bjarki Dagur