Foster verður Lance Armstrong

Deadline vefurinn greinir frá því að leikarinn Ben Foster muni leika hjólreiðamanninn Lance Armstrong, í nýrri ævisögulegri mynd sem leikstýrt verður af Stephen Frears.

ben foster

Handritið skrifaði John Hodge sem er meðal annars með Trainspotting á ferilskránni. Myndin rekur feril Armstrong allt frá því hann greindist með krabbamein og þar til að upp komst að hann hafði misnotað árangursaukandi lyf um árabil, í stærsta lyfjaskandal íþróttasögunnar.

Armstrong sigraði Tour de France hjólreiðakeppnina 7 sinnum á ferlinum.

Ben Foster mun á næstunni sjást í bíó í myndunum Ain’t Them Body Saints og Kill Your Darlings, sem báðar voru sýndar á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar sl.

Foster leikur einnig á móti Mark Wahlberg í Navy SEAL myndinni Lone Survivor , sem frumsýnd verður 27. desember nk.

Vonast er til þess að hægt verði að byrja á Armstrong myndinni nú í haust.