Afhverju ætli breski leikarinn Tom Hardy sé hulinn bakvið grímu í mörgum af frægustu hlutverkum sínum í kvikmyndum? Christopher Nolan, sem leikstýrði Hardy í nýjustu mynd hans, Seinni heimsstyrjaldar-stríðsmyndinni Dunkirk, sem nú er í bíó hér á landi, á skýringu á því.
Ástæðan er sú að sögn Nolan, að Hardy getur leikið betur með augunum eingöngu, en margir aðrir leikarar geta gert með öllum líkamanum.
Hér er sýnishorn:
Tom Hardy works best when his face is 80% covered pic.twitter.com/L9wgbjEu9w
— Dana Schwartz (@DanaSchwartzzz) July 6, 2017
Og annað hérna – mörgum ætti að vera í fersku minni raddbreytingin sem gríman úr The Dark Knight Rises fól í sér, þegar Hardy var þar í hlutverki þorparans Bane:
Nolan sagði í samtali við the Press Association: „Mér fannst mjög spennandi það sem hann gerði í The Dark Knight Rises bara með augunum, augabrúnunum og enninu.“
Það er því ekki skrýtið að Nolan hafi hugsað til Hardy þegar kom að því að ráða í hlutverk flugmannsins á Spitfire orrustuvélinni bresku í Dunkirk. „Ég hugsaði sem svo sjáum hvað hann getur gert með ekkert enni, eiginlega engar augabrúnir, og mögulega einu auga.“
Reyndar sást í allt andlit hans í örskotsstund þegar hann var að setja á sig flugmannsgrímuna:
Nolan segir að þetta sé til marks um leikhæfileika Hardy:
„Auðvitað þegar Tom er í essinu sína, þá gerir hann með einu auga miklu meira en aðrir geta gert með öllum líkamanum, og það er einstakur hæfileiki, hann er ótrúlegur.“
Esquire sagði fyrst frá málinu.