Harðjaxlar í kærulausri myndatöku

Nú styttist óðum í þriðju The Expendables myndina og eru margir hverjir orðnir spenntir fyrir því að sjá harðjaxlana á hvíta tjaldinum á ný.

Í myndinni etja Barney (Stallone), Christmas (Jason Statham) og félagar þeirra kappi við Conrad Stonebanks (Mel Gibson) sem stofnaði The Expendables-hópinn fyrir mörgum árum ásamt Barney. Stonebanks breyttist í miskunnarlausan vopnasala og núna mætast félagarnir fyrrverandi á nýjan leik.

Ný plaköt litu dagsins ljós fyrir myndina í dag og má þar sjá plaköt fyrir allar helstur persónur myndarinnar. Menn voru ekkert að hafa fyrir því að taka út ljósabúnað fyrir lokaútgáfuna, en það gefur plakötunum e.t.v. bara kæruleysislegan sjarma.

The Expendables 3 er væntanleg í bíó í ágúst á þessu ári.

01 - 7hDMoWh 02 - mCytju2 03 - sx9lGPG 04 - zVHPByv 05 - Tbseywb 06 - OI63HqD 07 - pa0Hbk8 08 - zV0WY3i 09 - TkFO813 10 - X681eo9 11 - TpCsHGw 12 - SvgmhQG 13 - B5NbFoP 14 - wgGutQU 15 - fXipNa6 16 - MvBCkcm