Köngulóin áfram langvinsælust

Toppmynd síðustu viku, Spider-Man: Across the Spider Verse sýnir ekki á sér neitt fararsnið því hún heldur sæti sínu á Íslenska bíóaðsóknarlistanum aðra vikuna í röð.

Hin nýfrumsýnda Transformers: Rise of the Beasts náði því ekki að velta ofurhetjunni úr sessi.

Tekjur Spider-Man voru nærri sjö milljónir króna en tekjur Transformers voru hátt í þrjár milljónir.

Þriðja sæti listans er svo skipað Disney hafmeyjunni í The Little Mermaid, sem er nú á sinni þriðju viku á lista.

Fjöllin átta í tólfta sæti

The Eight Mountains er einnig ný í Bíó paradís og fer beint í tólfta sæti aðsóknarlistans.

Þar er á ferðinni saga um vináttu tveggja manna þar sem kvikmyndatakan leikur við öll skilningarvit í víðfemri náttúru, eins og það er orðað á síðu bíósins.

Sjáðu íslenska aðsóknarlistann í heild sinni