T´Challa, konungurinn í Wakanda, öðru nafni Svarti pardusinn, ríkir enn á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans, en kvikmyndin Black Panther hefur slegið rækilega í gegn hér á landi sem og annarsstaðar.
Næst vinsælasta kvikmynd landsins í síðustu viku var íslenska gaman-spennumyndin Fullir vasar eftir Anton Sigurðsson og í þriðja sæti er líka íslensk mynd, Lói – Þú flýgur aldrei einn.
Ásamt Fullum vösum þá eru tvær aðrar nýjar myndir á listanum. Gamanmyndin Game Night fór beint í fjórða sæti listans og The Florida Project fór beinustu leið í 21. sæti listans.
Sjáðu aðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: