Þetta er mjög góð mynd. Hún er byggð á atburðum sem að gerðust for real. Þið verðið að sjá þessa mynd. That's all.
Ghosts of Mississippi (1996)
"In 1963 civil rights leader Medgar Evers was murdered in his own driveway. For 30 years his assassin has remained free. Is it ever too late to do the right thing?"
Myndin fjallar um síðustu réttarhöld yfir Byron De La Beckwith, sem myrti baráttumanninn Medger Evans á sjöunda áratug síðustu aldar.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
FordómarSöguþráður
Myndin fjallar um síðustu réttarhöld yfir Byron De La Beckwith, sem myrti baráttumanninn Medger Evans á sjöunda áratug síðustu aldar. Myndin hefst með morðinu og síðan er greint frá atburðum í kringum fyrstu tvö réttarhöldin sem bæði enduðu með því að kviðdómur gat ekki komið sér saman um niðurstöðu. Þá er fylgst með saksóknaranum Bobby De Laughter, hvernig hann breytist og sambandi hans við Myrlie Evers, ekkju Medgar Evers, eftir því sem hann verður ákveðnari í að reyna að láta rétta yfir Beckwith í þriðja sinn 30 árum síðar. Sumar persónur í myndinni eru leiknar af fólki sem raunverulega kom við sögu í málinu.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
James Woods tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik í aukahlutverki. Myndin einnig tilnefnd fyrir förðun.















