Náðu í appið
Valerian and the City of a Thousand Planets

Valerian and the City of a Thousand Planets (2017)

"Aðeins tíu tímar til stefnu"

2 klst 17 mín2017

Eftir að hafa lifað saman í sátt og samlyndi um margra alda skeið ógna nú ókunn öfl lífi íbúa í borginni Alpha, borg hinna þúsund...

Rotten Tomatoes47%
Metacritic51
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

Eftir að hafa lifað saman í sátt og samlyndi um margra alda skeið ógna nú ókunn öfl lífi íbúa í borginni Alpha, borg hinna þúsund pláneta, og þau Valerian og Laureline hafa aðeins tíu klukkustundir til að bjarga henni frá endanlegri eyðingu. Sagan gerist á 29. öld þegar viti bornar verur alheimsins geta auðveldlega ferðast í gegnum tíma og rúm. Vinsælasti áfangastaðurinn er borgin Alpha sem nefnd er borg hinna þúsund pláneta vegna þess að þar eru saman komnar verur frá öllum byggðum plánetum vetrarbrautanna, þar á meðal maðurinn frá plánetunni Jörð. Þessum verum hefur að mestu tekist að búa saman í sátt og samlyndi í nokkrar aldir og því bregður öllum í brún þegar óþekkt öfl gera árás á Alpha. Strax verður ljóst að árásin ber með sér gereyðingarógn og við henni verða þau Valerian og Laureline að bregðast í snatri, en þau eru nokkurs konar lögreglumenn 29. aldarinnar. Tekst þeim að finna hver það er sem stendur að bak árásinni og stöðva viðkomandi áður en það verður orðið of seint?

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Belga FilmsBE
River Road EntertainmentUS
Grive ProductionsFR
EuropaCorpFR
UFADE
Fundamental FilmsCN