Náðu í appið
Fletch

Fletch (1985)

"Meet the only guy who changes his identity more often than his underwear."

1 klst 38 mín1985

Irwin "Fletch" Fletcher, er blaðamaður í Los Angeles, og elskar starfið sitt.

Rotten Tomatoes79%
Metacritic68
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Irwin "Fletch" Fletcher, er blaðamaður í Los Angeles, og elskar starfið sitt. Undir dulnefninu Jane Doe, þá birtir hann greinar sem hafa vakið viðbrögð í gegnum tíðina. Núna er Fletch aftur á ferð: Hann dulbýr sig sem róna, býr á ströndinni og rannsakar eiturlyfjaviðskipti. Einn daginn kemur Alan Stanwyk að máli við hann, ríkur maður,sem biður hann, rónann, um að gera sér greiða. Fletch á að drepa Stanwyck með byssu og fá fyrir það 50 þúsund Bandaríkjadali, en Stanwyk er með krabbamein og vill að eiginkona sín fá líftryggingaféð hans. Það sem maðurinn vissi ekki var auðvitað að Fletch var í dulargervi, og þegar Fletch mætir aftur á skrifstofuna sem hann sjálfur, þá byrjar hann að rannsaka málið og uppgötvar að það er ekkert að Stanwyk, og uppgötvar tengsl hans við eiturlyfjasölu á svæðinu, einkaþotu, lögregluna, og mjög dýrt landssvæði í Utah.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Universal PicturesUS
Vincent Pictures

Frægir textar

"Chief: What do you do for a living, Mr. Fletch?
Fletch: I'm a shepard.
Chief: Why are you doing this, Mr. Fletch?
Fletch: I like men. I like to be manhandled. I like you."

Gagnrýni notenda (2)

Slöpp og húmorslaus

★★★☆☆

Chevy Chase leikur hér blaðamanninn Irwin Fletcher sem ákveður að þiggja háa peningaupphæð af manni fyrir að Fletch drepi hann. Fletch finnst eitthvað bogið við þetta þó og ákveður a...

Ein fyndnasta mynd Chevy Chase, hvar hann fer með hlutverk rannsóknarblaðamannsins Fletch. Fletch þessi skrifar undir nafninu Jane Doe og þegar hann er að rannsaka mögulega þáttöku lögreglu...