Náðu í appið
Alpha

Alpha (2018)

"Leaders are Born from Survival."

1 klst 37 mín2018

Alpha gerist fyrir 20 þúsund árum, einhvers staðar á meginlandi Evrópu, og segir frá ungum dreng, Keda, sem í miðri veiðiferð með föður sínum verður...

Rotten Tomatoes80%
Metacritic63
Deila:
9 áraBönnuð innan 9 ára
Ástæða:HræðslaHræðsla

Söguþráður

Alpha gerist fyrir 20 þúsund árum, einhvers staðar á meginlandi Evrópu, og segir frá ungum dreng, Keda, sem í miðri veiðiferð með föður sínum verður viðskila við hann og aðra veiðifélaga þeirra. Keda neyðist því til að sjá um sig sjálfur í fyrsta sinn á ævinni og finna leiðina heim áður en veturinn skellur á. Nokkrum dögum eftir viðskilnaðinn gengur Keda fram á særðan úlf sem undir venjulegum kringumstæðum væri einn af hans verstu óvinum en getur nú litla sem enga björg sér veitt. Keda ákveður að taka úlfinn með sér í hellinn sem hann hefur fundið og gerir í framhaldinu sitt besta til að bæði fæða hann og hjúkra honum. Smám saman fer úlfurinn að treysta bjargvætti sínum betur og betur uns á milli þeirra myndast traust vinátta. Hún á í raun eftir að breyta mannkyninu til allrar framtíðar því þetta er í fyrsta sinn sem maður og úlfur mynda á milli sín slíka vináttu, en úlfar eru eins og flestir vita forfeður allra hunda og hundakynja á jörðinni.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Studio 8US
Columbia PicturesUS