Náðu í appið
Belleville Cop

Belleville Cop (2018)

Le Flic de Belleville

"Brostu. Baaba er mættur í bæinn."

1 klst 50 mín2018

Þegar æskuvinur lögreglumannsins Sebastians „Baaba“ Bouchard er myrtur af glæpamönnum sem gera út frá Miami í Flórída kemur ekkert annað til greina fyrir hann en...

Deila:
9 áraBönnuð innan 9 ára
Ástæða:HræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Þegar æskuvinur lögreglumannsins Sebastians „Baaba“ Bouchard er myrtur af glæpamönnum sem gera út frá Miami í Flórída kemur ekkert annað til greina fyrir hann en að skella sér vestur yfir haf og ganga á milli bols og höfuðs á þeim seku. Baaba, eins og Sebastian er alltaf kallaður, hefur allan sinn aldur haldið til í Belleville-hverfinu í París þar sem hann býr hjá mömmu sinni og þekkir hvern krók og kima. Það hefur komið sér vel eftir að hann gerðist lögreglumaður og uppgötvaði að hann hefur einnig mikla hæfileika sem bardagamaður og er í ofanálag góð skytta. En Miami er allt annar staður en Belleville og spurningin er hvort aðferðirnar sem Baaba hefur notað á heimavelli sínum dugi einnig í baráttu við harðsvíraða eiturlyfjakónga í Bandaríkjunum. Sér til halds og traust fær Baaba aðstoð frá lögreglumanninum Ricardo Garcia og hver veit nema þeir eigi eftir að mála bæinn rauðan ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

TF1 Films ProductionFR
Tessalit ProductionsFR
Davis FilmsFR
Metropolitan FilmexportFR
KorokoroFR
TF1FR