Náðu í appið
The Music of Silence

The Music of Silence (2017)

La musica del silenzio

"The Unforgettable True Story of Andrea Bocelli"

1 klst 55 mín2017

Sönn saga ítalska söngvarans Andreas Bocelli sem fæddist með augnsjúkdóm og varð endanlega blindur 12 ára að aldri.

Deila:
9 áraBönnuð innan 9 ára

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Sönn saga ítalska söngvarans Andreas Bocelli sem fæddist með augnsjúkdóm og varð endanlega blindur 12 ára að aldri. Bocelli sýndi snemma mikinn áhuga á tónlist og byrjaði í píanókennslu aðeins sex ára að aldri. Á næstu árum lærði hann einnig að spila á önnur hljóðfæri eins og flautu, básúnu, saxófón, trompet, gítar og trommur um leið og áhugi hans á söng óx með hverju árinu. Fram að tólf ára aldri hafði Andrea glímt við alvarlega sjóndepru eftir að hafa fæðst með augnsjúkdóminn gláku. Þá gerðist það slys að hann fékk bolta í augað af miklum krafti sem orsakaði algjöran sjónmissi þrátt fyrir að læknar hefðu gert sitt ítrasta til að bjarga sjón hans. 14 ára að aldri vann Andrea sína fyrstu söngkeppni og eftir menntaskóla lagði hann stund á laganám sem hann fjármagnaði með því að syngja á börum og veitingahúsum. Smám saman á næstu árum tók svo söngurinn allt yfir ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

PicomediaIT
AMBI PicturesUS
RAIIT