Sjúgðu mig Nína (1985)
Í upphafi myndar giftast Hjörtur og Nína sparimerkjagiftingu.
Deila:
Söguþráður
Í upphafi myndar giftast Hjörtur og Nína sparimerkjagiftingu. Þeim þykir ósköp vænt hvoru um annað og eyða í sameiningu sparimerkjafénu í dóp. En það er einn höggormur í þessari eiturlyfjaparadís og það er dílerinn vondi. Andvaraleysi Plower Power kynslóðarinnar er algjört og það líður ekki á löngu áður en dílerinn er búinn að flækja þau í viðurstyggilegt morðmál. Rekur hver stóratburðurinn annan og málið endar auðvitað með skelfingu fyrir Nínu og Hjört. Nafn myndarinnar vitnar til þess þegar Nína rankar við sig eftir LSD-át næturinnar og heyrir mjóróma rödd við hlið sér sem hvetur hana til að fá sér smók af hassi í morgunsárið - „Sjúgðu mig Nína“.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Óskar JónassonLeikstjóri

OxmáHandritshöfundur











