Náðu í appið
Jurassic World Dominion

Jurassic World Dominion (2022)

"It all started here."

2 klst 26 mín2022

Myndin gerist fjórum árum eftir að Isla Nublar var eyðilagt.

Rotten Tomatoes29%
Metacritic38
Deila:
Jurassic World Dominion - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:HræðslaHræðsla

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Myndin gerist fjórum árum eftir að Isla Nublar var eyðilagt. Risaeðlur lifa nú og veiða meðal manna út um allan heim. Þetta viðkvæma valdajafnvægi mun móta framtíðina og ákvarða, í eitt skipti fyrir öll, hvort að mennirnir séu áfram helstu rándýr jarðarinnar, nú þegar þeir verða að deila henni með ógnvænlegustu lífverum sögunnar.

Aðalleikarar

Vissir þú?

Faðir Bryce Dallas Howard er hinn þekkti leikari og leikstjóri Ron Howard sem vann Óskarsverðlaunin fyrir bestu mynd og bestu leikstjórn fyrir A Beautiful Mind árið 2001. Richard Attenborough, sem lék í fyrstu Jurassic Park myndinni, var einnig leikari og leikstjóri og fékk Óskarinn fyrir bestu mynd og bestu leikstjórn fyrir Gandhi árið 1982.
Laura Dern og Bryce Dallas Howard leika hér saman í fyrsta skipti. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem leiðir fjölskyldna þeirra liggja saman. Feður þeirra, Bruce Dern og Ron Howard, léku báðir í sjónvarpsþáttunum The Fugitive frá 1963, en þó aldrei á sama tíma. Móðir Dern, Diane Ladd, lék í Chinatown árið 1974 ásamt Rance Howard, afa Dallas. Rance og Bruce Dern léku svo saman í Nebraska frá 2013.
Anklyosaurus og Therizinosaurus eru uppáhalds risaeðlur leikstjórans Colin Trevorrow.
Við frumsýningu kvikmyndarinnar verður Sam Neill eldri en Richard Attenborough var í upprunalegu myndinni.
Samtals voru meira en 100 leikmyndir smíðaðar fyrir myndina.
Jurassic World: Dominion gerist fjórum árum eftir Jurassic World: Fallen Kingdom

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Amblin EntertainmentUS
Universal PicturesUS