Náðu í appið
Brokedown Palace

Brokedown Palace (1999)

"They were willing to go anywhere for the perfect summer. Until stranger changed everything"

1 klst 40 mín1999

Alice og Darlene, sem hafa verið vinkonur frá fæðingu, eru nýbúnar að útskrifast úr miðskóla.

Rotten Tomatoes31%
Metacritic44
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Streymi
Disney+

Söguþráður

Alice og Darlene, sem hafa verið vinkonur frá fæðingu, eru nýbúnar að útskrifast úr miðskóla. Þær eru að skipuleggja sumarfrí á Hawaii, en þær heyra að það sé enn betra að fara til Bangkok í Tælandi. Þær fara … án þess að segja foreldrum sínum frá breyttum áfangastað. Það er mikið fjör í Bangkok, en þær eru ekkert alltof ánægðar með gististaðinn ódýra sem þær eru á. Þær stelast til að fara í sundlaug á lúxus hóteli, en lenda í vandræðum þegar þær þurfa að borga fyrir drykkina sem þær pöntuðu. Þeim er bjargað úr klípunni af áströlskum hugbúnaðarráðgjafa sem er þarna í viðskiptaferð. Nick er góður gaur, þó hann eigi erfitt með að gera upp við sig hvorri stúlkunni hann er hrifnari af. Hann segir þeim að Hong Kong sé frábær, og hann sé til í að skipta flugmiða sínum sem er á fyrsta farrými fyrir þrjá á almennu farrými … og stúlkurnar taka boðinu fegins hendi. Á flugvellinum kemur lögreglan skyndilega aðvífandi. Stúlkurnar hafa heróín í farangrinum og faðir Darlene verður ekkert ágengt við að fá þær lausar úr fangelsi, jafnvel þó að hann fái hjálp frá fíkniefnalöggu á staðnum. En þá kemur til kasta hins sjúskaða lögmanns Hank Green, sem gæti gert eitthvað til að hjálpa, en það mun kosta ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Adam Fields
Adam FieldsHandritshöfundur
David Arata
David ArataHandritshöfundur

Framleiðendur

Two Girls Productions
Fox 2000 PicturesUS
Adam Fields Productions
20th Century FoxUS