Náðu í appið
Switchback

Switchback (1997)

" The hunter becomes the hunted."

1 klst 58 mín1997

Alríkislögreglumaðurinn Frank LaCrosse snýr heim og uppgötvar að búið er að brjótast inn á heimili hans.

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára

Söguþráður

Alríkislögreglumaðurinn Frank LaCrosse snýr heim og uppgötvar að búið er að brjótast inn á heimili hans. Sonur hans er horfinn og búið er að myrða barnapíuna á grimmilegan hátt. Morðið ber öll einkenni hins slóttuga og dularfulla fjöldamorðingja sem gengið hefur laus í tvö ár og myrt fjölda manns. Örvæntingarfull leit Franks að morðingjanum leiðir hann til Amarillo í Texas, en þar hafa tvö lík fundist sem einnig bera öll einkenni þessa ógeðfellda morðingja. Á meðan Frank leitar að ódæðismanninum, þá rannsaka lögreglustjórinn Buck Olmstead og lögreglufulltrúinn Nate Booker morðin tvö í bænum, á milli þess sem þeir standa í kosningabaráttu við lögregluforingjann Jack McGinnis. Frank vonast nú til að finna þennan geðsjúkling áður en hann kemst til fjalla og hverfur að eilífu.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Antonio Centa
Antonio CentaLeikstjóri

Framleiðendur

Rysher EntertainmentUS
Pacific WesternUS
Paramount PicturesUS

Gagnrýni notenda (1)

Danny Glover fer á kostum í þessari svakalegu spennumynd sem kemur verulega á óvart. Magnþrungin spennan heldur manni við efnið frá upphafi til enda ásamt góðum leik hjá Danny Glover eins...