The Object of My Affection
1998
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 3. júlí 1998
Sometimes The Most Desirable Relationship Is The One You Can't Have
112 MÍNEnska
53% Critics 51
/100 George Hanson er staddur í matarboði þegar hann fregnar það hjá Ninu Borowski, sem hann þekkir alls ekki neitt, að kærastinn hans sé um það bil að láta hann róa. Nina þessi reynist vera full samúðar með honum og býður honum jafnvel afnot af aukaherbergi í íbúð sinni á Manhattan. Og þegar hinn myndarlegi kærasti George, háskólaprófessorinn Dr. Joley,... Lesa meira
George Hanson er staddur í matarboði þegar hann fregnar það hjá Ninu Borowski, sem hann þekkir alls ekki neitt, að kærastinn hans sé um það bil að láta hann róa. Nina þessi reynist vera full samúðar með honum og býður honum jafnvel afnot af aukaherbergi í íbúð sinni á Manhattan. Og þegar hinn myndarlegi kærasti George, háskólaprófessorinn Dr. Joley, tilkynnir honum hikandi að samband þeirra hafi runnið sitt skeið á enda þekkist George boð Ninu um húsaskjól og upphefst þá markverðasta sambandið sem þau hafa lent í til þessa. Á komandi mánuðum verða Nina og George bestu vinir og kemur það unnusta hennar, lögfræðingnum Vince, í nokkurt uppnám. Það sem veldur honum þó mestu hugarangri er að þegar Nina reynist vera ólétt þá lýsir hún því yfir að hún kjósi frekar að ala barn sitt upp með hinum samkynhneigða herbergisfélaga sínum en kærastanum sjálfum.... minna